Enn leitað á Fimmvörðuhálsi

Björgunarsveitarmenn aðstoða ferðalanga á hálendinu.
Björgunarsveitarmenn aðstoða ferðalanga á hálendinu. Landsbjörg


Leit stendur enn yfir af norskum göngumanni sem lagði af stað frá skálanum á Fimmvörðuhálsi seinni partinn í gær á leið í Þórsmörk.

Hann hringdi í nótt og bað um aðstoð. Hann gat ekki gefið upp staðsetningu. Björgunarsveitin  Dagrenning  frá Hvolsvelli var kölluð út og lögðu björgunarsveitarmenn af stað til að finna manninn.

Enn er ekki ljóst hvar nákvæmlega maðurinn er staðsettur en ekki hefur náðst símasamband við manninn síðan í morgun, líklega vegna rafmagnsleysi símans, segir í tilkynningu.

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar af suðvesturhorninu hafa verið kallaðar út og er leit af manninum í fullum gangi en hann er slasaður á fæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert