Þriðjungur vélanna á áætlun

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur.

Aðeins þriðja hver vél Iceland Express, til og frá Keflavík, hélt áætlun síðustu sjö daga og meðaltöf á brottför var 48 mínútur. Þetta kemur fram í töflu sem birt er á vefnum túrista.is og er byggð á upplýsingum um komu- og brottfaratíma á heimasíðu Leifsstöðvar.

Vélar Icelandair voru í tæplega 80% tilvika á réttum tíma og seinkunin var að jafnaði rúmar sjö mínútur. Þetta sýna Stundvísitölur Túrista sem byggðar eru á upplýsingum um komu- og brottfaratíma á heimasíðu Leifsstöðvar.

Segir á vefnum að það veki athygli, að ferðir Iceland Express til New York stóðust aðeins einu sinni áætlun fyrstu fjórtán dagana í júlí.

Túristi.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert