Umferð farin að þyngjast

mbl.is/Ernir

Leiðin virðist liggja út úr bænum í góða veðrinu en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi er mikil umferð í gegnum bæinn og á öllum vegum sýslunnar.

Lögreglan býr sig nú undir mikla ferðahelgi enda er veðurspá góð. Meðal annars mun lögreglan á Selfossi vera með fíkniefnahunda á öllum tjaldsvæðum sýslunnar um helgina.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er umferð þegar mikil í norður- og vesturátt. Umferð hefur gengið áfallalaust fyrir sig en lögregla er með eftirlit á vegunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert