Ekið var á ljósastaur á Strandvegi í Vestmannaeyjum, skammt frá höfninni, um klukkan hálf níu í morgun. Engin slys urðu á fólki, en bíllinn er mikið skemmdur og staurinn sömuleiðis.
Ökumaðurinn mun hafa blindast af sólinni, að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum.