Umferð er nú komin á brúna yfir Múlakvísl, en gerð hennar gekk fljótar fyrir sig en búist var við í fyrstu. Starfsmenn Vegagerðarinnar gengu yfir brúna og vígðu hana, en fyrstur til að aka yfir hana var Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra og var Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra með í för.
Nokkur fjöldi bíla beið beggja megin brúarinnar eftir að komast yfir hana.