Skjálfti af stærðinni 3,8 stig varð rétt upp úr klukkan tvö í nótt í Mýrdalsjökli. Í kjölfarið fylgdu 15 eftirskjálftar á 25 mínútna kafla, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.
Stærsti skjálftinn reið yfir klukkan 02:02:27 og í kjölfar eftirskjálftanna 15 gekk óróinn niður. Að sögn Hjörleifs Sveinbjörnssonar jarðfræðings á Veðurstofu Íslands hafa jarðskjálftastöðvar
í kringum Mýrdalsjökul hafa ekki mælt neinn óróa sem gefur til kynna að
um frekari hræringar séu í vændum.