Guðný Erla Guðnadóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Landsbankans á Höfn í Hornafirði.
Guðný Erla er verkfræðingur og hefur meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur undanfarið unnið sem lána- og viðskiptastjóri fyrirtækja hjá Íslandsbanka á Ísafirði.
Guðný var einn 10 umsækjenda um stöðuna sem auglýst var í júní, en 4 konur og 6 karlar sóttu um.
Guðný Erla hefur starfað sem lána- og viðskiptastjóri fyrirtækja frá 2007, árin 2005-2007 starfaði hún sem framkvæmdastjóri trésmíðaverkstæðis og þar áður sem framkvæmda- og fjármálastjóri fiskvinnslu í afleysingum. Hún er gift Róberti Hafsteinssyni og eiga þau 3 börn.