„Þessi óvönduðu vinnubrögð meirihlutans eru óverjandi og hvorki í samræmi við lög né þær venjur sem hafa ríkt á þessum vettvangi,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, en meirihluti Samfylkingarinnar og Besta flokksins í borgarstjórn hefur ekki lagt fram þriggja ára áætlun Reykjavíkurborgar eins og gera átti í síðasta lagi 14. febrúar síðastliðinn.
„Svona miklar tafir eru einsdæmi og þær skýringar sem fulltrúar meirihlutans hefur gefið eru með öllu ófullnægjandi enda á stærsta sveitarfélag landsins að geta lokið sömu lögbundnu verkefnum á sama tíma og önnur mun minni sveitarfélög. Vandræðagangurinn í kringum þetta mál skýrist fyrst og fremst af óstjórn og óvönduðum vinnubrögðum,“ segir Hanna Birna.
Hún segir að þar sem meirihlutinn hafi ekki klárað málið enn og svarar því til að ekki standi til að bera áætlunina upp fyrr en einhvern tímann í haust hafi minnihlutinn ekki önnur tæki en þau að óska eftir aukafundi um málið eins og hann gerði á fundi borgarstjórnar í morgun. Farið var fram á að fundurinn yrði haldinn eigi síðar en 10. ágúst næstkomandi.
Þess má geta að fram kemur í samþykktum borgarstjórnar að ef fimm eða fleiri borgarfulltrúar fara fram á slíkan aukafund beri að verða við því.