Mikil fjölgun farþega með Iceland Express

Iceland Express.
Iceland Express.

Rösklega tólf þúsund farþegar flugu með Iceland Express frá Gatwickflugvelli í Lundúnum í júní síðastliðnum.  Það er fimmtíu prósenta aukning frá fyrra mánuði og fjörutíu og fjögurra prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. 

Aldrei hafa jafnmargir farþegar flogið með Iceland Express í einum mánuði frá Lundúnum, segir í fréttatilkynningu frá Iceland Express sem vísar í 
nýja skýrslu frá CAA, breskum flugmálayfirvöldum.
 
Samkvæmt þessum tölum er markaðshlutdeild Iceland Express í farþegaflutningum frá London til Keflavíkur rúmlega 41 prósent og hefur aldrei verið meiri, samkvæmt tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert