Forseti Íslands sendir samúðarkveðjur

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í morgun samúðarkveðjur til Haraldar Noregskonungs og norsku þjóðarinnar.

Í kveðjunni lýsti forseti djúpri samúð allra Íslendinga vegna hinna skelfilegu atburða í Noregi. Hugur okkar væri hjá fjölskyldum og vinum þeirra sem látist hefðu og við vonuðum að þau hefðu styrk til að glíma við hina miklu sorg, að því er segir í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu.

Á stundum sem þessum yrði bræðralag norrænna þjóða að ríkum samhug og samstöðu; lýðræði, menning og réttarríki vörn gagnvart örlagaþrungnum áföllum.

Í kveðjunni til Noregskonungs kom jafnframt fram að á morgun myndi forseti sækja guðsþjónustu í Reykholtskirkju, stað Snorra Sturlusonar, þar sem beðið yrði fyrir norskri vinaþjóð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert