Fólksbifreið fór út af Dettifossvegi eystri um klukkan tvö í dag og fór eina veltu áður en hún staðnæmdist. Tvær erlendar konur voru í bifreiðinni sem er bílaleigubíll. Sjúkrabifreið var send á staðinn frá Kópaskeri og voru þær fluttar á heilsugæslustöðina á staðnum til aðhlynningar.
Talið er að meiðsli kvennanna séu minniháttar að sögn lögreglunnar á Húsavík. Bifreiðin mun hins vegar vera mikið skemmd.