Laust fyrir klukkan eitt í nótt varð jarðskjálfti af stærðinni 3,2 stig um það bil 5 km austsuðaustur af Goðabungu í Mýrdalsjökli.
Að sögn Sigþrúðar Ármannsdóttur á eftirlits- og spásviði Veðurstofu Íslands voru upptök skjálftans á um 1,5 kílómetra dýpi klukkan 00:54,6. Enginn hlaupórói hafi sést á mælum.