Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist verða með viðamikið eftirlit um verslunarmannahelgina eins og jafnan áður. Áhersla hafi verið lögð á eftirlit með hjól- og fellihýsum og skráningu og skráningarmerkjum ökutækja.
Jafnframt þessu verður haldið úti eftirliti í hverfum í umdæminu og fylgjast með íbúðarhúsum. Segir lögreglan að það sé fátt óskemmtilegra en að koma heim úr ferðalagi og sjá að innbrotsþjófar hafi látið greipar sópa um heimilið.
Lögreglan vill jafnframt hvetja fólk, sem heldur burt af höfuðborgarsvæðinu í lengri eða skemmri tíma, til að ganga tryggilega frá heimilum sínum. Gott ráð sé biðja nágranna um að líta eftir húsnæði, fá þá til að kveikja ljós, fjarlægja póst, leggja í bílastæði o.s. frv.
Þá minnir lögreglan á mikilvægi þess að verðmæti séu ekki skilin eftir í augsýn en þjófar sækist m.a. eftir fartölvum, myndavélum o.þ.h. hlutum. Þá sé rétt að hafa hugfast að GPS-tækjum er oft stolið úr bílum og því nauðsynlegt að gera viðeigandi ráðstafanir þegar ökutæki er yfirgefið.
Lögreglan hvetur líka fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir. Betra sé að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan.
Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112. Ef erindið er af öðrum toga, og þolir e.t.v. einhverja bið er hægt að hafa samband við þjónustuver embættisins á Hverfisgötu 113-115, Reykjavík, í síma 444-1000. Sömuleiðis er hægt að koma upplýsingum á framfæri um hvaðeina með því að senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is