„Ég var fyrir ofan Langasjó og það var ekkert vafamál,“ sagði Jón Grétar Sigurðsson, flugmaður hjá Atlantsflugi. Hann fann megna brennisteinslykt þar sem hann var á flugi, en hún er rakin til hlaups í Skaftá.
Jón Grétar er með útsýnisflugferðir úr Skaftafelli í Öræfum og hefur flogið nær daglega yfir Vatnajökul og nágrenni í sumar. Hann kvaðst eiga eldri myndir af Skaftárkötlum frá því í júlí og ekki sé neinum blöðum um að fletta að það sé að hlaupa úr vestari katlinum.
„Ég fylgist náið með þessu,“ sagði Jón Grétar. Hann flaug yfir Skaftárkatlana í dag og eins yfir útfall Skaftár og tók myndir. Þá flaug Jón Grétar einnig yfir Hamarinn og nágrenni þar sem hljóp fram mikið vatn í Hágöngulón á dögunum.
„Það er mikil sigdæld austan við Hamarinn og hrun í henni að hluta,“ sagði Jón Grétar.