Skemmtanahald fór vel fram í nótt og engin meiriháttar mál komu á borð lögreglu. Í Vestmannaeyjum var nokkur erill hjá lögreglu, nokkur fíkniefnamál og slagsmál en ekkert alvarlegt mál. Á Akureyri, Egilsstöðum og Siglufirði þar sem stórar útihátíðir eru haldnar var nóttin tíðindalaus hjá lögreglu.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri þar sem hátíðin Ein með öllu fer fram var nóttin ágæt og engin fíkniefna- eða líkamsárásmál komu upp þar.
Á Síldarævintýrinu á Siglufirði höguðu hátíðargestir sér vel í nótt. Engin slagsmál voru og var nóttin tíðindalaus af hálfu lögreglunnar.