Brotist var inn í bátaskýli við Ósbraut í Garði og þaðan stolið tveimur 20 lítra brúsum af bensíni.
Samkvæmt lögreglu er málið í rannsókn.
Líklegt má telja að einhver óprúttinn aðili hafi viljað spara sér bensínkostnað um verslunarmannahelgina með þessu athæfi.