Annie Mist Þórisdóttir hefur náð forustunni í kvennaflokki á heimsleikunum í crossfit, sem nú standa yfir í Los Angeles.
Lokadagur keppninnar er í dag og náði Annie Mist bestum tíma í fyrstu keppnisgreininni. Við það náði hún 20 stiga forskoti á Kristan Clever frá Bandaríkjunum, sem vann mótið í fyrra.
Þrjár keppnisgreinar eru eftir í dag en mótinu lýkur um miðnætti að íslenskum tíma í kvöld.
Þáttur um keppina í gær á Mbl. sjónvarpi
Heimasíða heimsleikanna í crossfit