Einn gisti fangageymslur á Akureyri

Margir voru í miðbæ Akureyrar um miðnættið.
Margir voru í miðbæ Akureyrar um miðnættið. mbl.is/Þorgeir

Fjölmenni var í miðbæ Akureyrar í nótt og ölvun var áberandi að sögn lögreglunnar á staðnum. Nokkur erill var hjá lögreglunni en þó var aðeins um minniháttar mál að ræða.

Einn þurfti að gista fangageymslur sökum mikillar ölvunar. Þá þurfti lögregla að hafa afskipti af nokkrum sem höfðu fengið sér aðeins of mikið neðan í því og sofnað ölvunarsvefni utandyra víðs vegar um bæinn. 

Á Akureyri fer nú fram fjölskylduhátíðin „Ein með öllu“. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert