Umferð í átt að höfuðborginni hefur gengið áfallalaust fyrir sig í dag. Mjög mikil umferð er frá Akureyri á leið suður og hefur verið í allan dag. Er þar bíll við bíl á leið úr bænum.
Að sögn lögreglu á Blönduósi er töluverð umferð þar en þó minni en undanfarin ár. Líklegt sé að hún hafi dreifst meira en fyrri ár og einhverjir lagt af stað í gær. Umferðin gæti þó átt eftir að þyngjast með kvöldinu.
Á Suðurlandsvegi gengur umferðin í bylgjum eftir ferðum Herjólfs til Landeyjahafnar. Að sögn lögreglu hefur dreifst nokkuð úr umferðinni og hún sé minni en búist hafði verið við. Töluverð umferð hafi verið í gær og eflaust margir flúið óveðrið og rigninguna á Suðurlandi.