Kannabisræktun í Eyjum

Kannabisplanta. Mynd úr myndasafni.
Kannabisplanta. Mynd úr myndasafni. Júlíus Sigurjónsson

Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á þrjár kannabisplöntur við húsleit í íbúð í Vestmannaeyjum í gærkvöldi.  Einnig var lagt hald á búnað til ræktunar. 

Húsráðandinn var færður til yfirheyrslu vegna málsins og viðurkenndi aðild að málinu.  Talið er að fleiri tengist ræktuninni og er málið í rannsókn, að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert