Margir óku um Héðinsfjarðargöng

Ólafsfjörður - séð frá Héðinsfjarðargöngum
Ólafsfjörður - séð frá Héðinsfjarðargöngum mbl.is/Sigurður Ægisson

Síðastliðinn laugardag fóru 1.974 bílar um Héðinsfjarðargöng, Siglufjarðarmegin, en 1.913 Ólafsfjarðarmegin, sem gerir að meðaltali 1.944 bíla um bæði göng.

Litlu minni umferð var um göngin á sunnudeginum eða 1.853 bílar að meðaltali. Umferð dettur aftur á móti mjög niður á mánudeginum, eða niður í 1.201 bíl. Þetta kemur fram á fréttavefnum Siglufirðingur.

Nýliðin þriggja daga helgi er þá með langhæsta meðaltal hingað til eða 1.729 bíla/sólarhring frá föstudegi til og með sunnudegi.

Meðalumferð það sem af er ári er nú 576 (bílar/sólarhring). Þetta meðaltal gæti þó átt eftir að dragast aðeins sama; það ræðst af því hvernig haustið verður.

„Afar fróðlegt verður að fylgjast með umferðinni um næstu helgi þar eð sú helgi hefur jafnan reynst stærri, þar sem nokkrar útihátíðir fara fram á svæðinu þá.

Nefna má Fiskidaginn mikla á Dalvík, Pæjumótið í Fjallabyggð og Króksmótið á Sauðárkróki. Þá kemur í ljós hvort umferðin hegðar sér með svipuðum hætti og undanfarin ár sem leitt gæti til þess að 2.000 bíla múrinn verði rofinn, en líklegt verður að telja að veðurfar spili stóra rullu í því," segir á siglufirdingur.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert