Enginn skortur á lambakjöti hjá SS

Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, segir að enginn skortur sé á lambakjöti hjá fyrirtækinu og ef lambakjöt vanti í verslanir þá geti þær leitað til til SS eftir lambakjöti.

Segir í tilkynningu frá SS að undanfarna daga og vikur hafi komið fram fullyrðingar um að lambakjöt skorti á innanlandsmarkaði og neytendur geti ekki keypt kjöt þar sem það sé ekki á boðstólum í verslunum. Jafnframt hefur verið gefið í skyn að umræddur skortur sé að einhverju leyti tilbúinn þar sem sláturleyfishafar ætli að sitja á birgðum og selja þær síðar á hærra verði eða sem unna vöru fyrir jól.

Forgangsmál að sinna innanlandsmarkaði

„Af þessum sökum vill Sláturfélagið árétta að engin skortur er á lambakjöti hjá félaginu og verslanir geta fengið alla vöruliði sem SS framleiðir í neytendapakkningum úr lambakjöti eins og þarf. Það er því engin ástæða til að láta þessar vörur vanta í verslanir.

Það er forgangsmál hjá SS að sinna innanlandsmarkaði og hefur félagið haldið eftir kjöti í samræmi við söluáætlanir og stöðvað útflutning vegna góðrar sölu innanlands.

Félagið hefur jafnframt deilt til annarra kjötvinnsla og sláturleyfishafa mörgum tugum tonna af kjöti undanfarið til að stuðla að því að markaðnum væri sinnt. Sláturfélagið verður birgðalaust í lok þessa mánaðar og engu kjöti verður haldið eftir sem hægt væri að selja," segir í tilkynningu.

Stefnir í að til verði 50-100 tonn af nýju lambakjöti

Skv. birgðaskýrslum voru í upphafi ágúst til tæp 600 tonn af lambakjöti í landinu. Áætluð sala í ágúst er 500 – 550 tonn. Auk þess verður slátrað í mörgum sláturhúsum landsins í ágúst sem mun væntanlega leiða til þess að 50 – 100 tonn verða til sölu af nýju kjöti í landinu, segir í tilkynningu frá SS.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert