Nýtt Skaftárhlaup að hefjast

.
. Jónas Erlendsson

Fyrstu merki þess að hlaup geti verið að hefjast úr Eystri-Skaftárkatli hafa komið fram á mælum Veðurstofunnar. Órói hefur mælst á jarðskjálftamælum í kringum Vestanverðan Vatnajökul frá því fljótlega eftir miðnætti í nótt og aur/grugg hefur frá sama tíma aukist mikið á mæli í Skaftá við Sveinstind. Vatn úr Eystri katlinum hefur enn ekki komið fram á mælinum við Sveinstind.

Gunnar Sigurðsson, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands, segir að þó vatnsrennsli hafi enn ekki aukist sé ýmislegt sem bendi til þess að hlaup sé að hefjast. „Það er enn ekkert að sjá svo sem, en það hefur komið fram órói á mælunum og gruggið hefur jafnframt aukist í ánni. Það bendir til hlaups.“

Ef af verður, er ekki búist við að hlaupið nái hámarki í byggð fyrr en á föstudag. Þar sem stutt er síðan hljóp úr katlinum síðast er ekki búist við stóru hlaupi, en það verður þó töluvert stærra en hlaupið úr Vestari katlinum sem nú er að ganga niður. Vegurinn í Skaftárdal mun væntanlega lokast og eins gæti vatn flætt yfir Skaftártunguveg við Hvamm og veginn við Hólaskjól á Fjallabaksleið Nyrðri í hámarki flóðsins, segir í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.
 
Fólki er ráðlagt að vera ekki nálægt upptökum Skaftár eða í lægðum meðfram henni vegna mengunar af völdum brennisteinsvetnis, en brennisteinsvetni getur skaðað slímhúðir í augum og öndunarvegi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert