Tveir jarðskjálftar riðu yfir skammt frá Krýsuvík á þriðja tímanum í nótt. Annar þeirra mældist 2,6 stig og hinn 2,8 stig.
Að sögn starfsmanna Veðurstofunnar voru upptök skjálftanna um sjö kílómetra norð-norðaustur af Krýsuvík. Þeir fundust báðir í Reykjavík og í Hafnarfirði.
Skjálftar á þessum slóðum eru jafnframt algengar.