Opnunarhátíð Hinsegin daga verður í Háskólabíó í kvöld, en Hinsegin dagar munu standa yfir fram á sunnudag. Hápunktur hátíðarhaldanna, Gleðigangan, verður að þessu sinni á nýjum stað, en lagt verður af stað stundvíslega klukkan 14:00 á laugardaginn frá Vatnsmýrarvegi, austan BSÍ, eftir Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og fram hjá Arnarhóli þar sem fjöldi skemmtikrafta treður upp og eru þar á meðal Páll Óskar, Lay Low og Gunni og Felix.