Sigmundur Davíð flytur Hólaræðuna

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks verður aðalræðumaður á Hólahátíð sem fram fer um næstu helgi. Hefð er fyrir því að forystumenn í samfélaginu flytji Hólaræðuna og hefur hún oft vakið athygli og umræður.

Á Hólahátíð verður að þessu sinni sérstök dagskrá um Halldóru Árnadóttur konu Guðbrandar Þorlákssonar biskups. Karl Sigurbjörnsson messar og skáld Hólahátíðar er Einar Már Guðmundsson. 

Hólahátíð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert