Nú framan af degi er verið að malbika á Sæbraut, frá Kalkofnsvegi að Reykjanesbraut. Þegar því lýkur um miðjan dag verður unnið á Reykjanesbraut, frá Miklubraut að Breiðholtsbraut.
Unnið er á einni akrein í einu, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Einnig er unnið að malbikun á Hafnavegi, frá Flugvallarbraut að Garðskagavegi.