Tjáir sig ekki um ummæli Þráins

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. mbl.is/Eggert

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist ekki ætla að tjá sig um ummæli Þráins Bertelssonar, þingmanns VG.

Þráinn hefur áður sagt að hann treysti sér ekki til að styðja fjárlög ríkisstjórnar nema leyst verði úr fjárhagsvanda Kvikmyndaskóla Íslands.

„Ég tjái mig ekki um það á þessu stigi. Þetta mál er nú í vinnslu bara,“ segir Steingrímur aðspurður um viðbrögð við ummælum þingmanns VG.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert