Karl á þrítugsaldri var staðinn að hraðakstri á Nýbýlavegi í Kópavogi í gærkvöld. Bíll hans mældist á 124 km hraða á móts við Álfabrekku en þarna er 50 km hámarkshraði.
Ökumaðurinn, sem hefur áður verið tekinn fyrir hraðakstur, var færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.