Rannsakaði meintar iðnnjósnir Kínverja

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. Ljósmynd/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri segir að Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, fari með rangt mál þegar hann segir að embætti ríkislögreglustjóra hafi ekkert aðhafst til að rannsaka meintar iðnnjósnir Kínverja hér á landi.

Ríkislögreglustjóri sendir frá sér tilkynningu í dag vegna ummæla Kára, sem birtust í Fréttablaðinu í morgun. Þar segir Kári að embættið hafi á engan veg brugðist við beiðni fyrirtækisins þess efnis að kannað yrði hvort staðhæfingar um að kínversk stjórnvöld stunduðu iðnnjósnir á sviði erfðagreiningar og læknisfræðilegra rannsókna á Íslandi ættu við rök að styðjast. „Og það sem meira er, hæstvirtur innanríkisráðherra  gaf út yfirlýsingu um að þetta skipti ekki máli, því menn ættu ekki að vera með svona leyndarmál,“ sagði Kári einnig.

Að sögn Haraldar Johannessen ritaði Íslensk erfðagreining bréf hinn 8. desember 2010 þar sem óskað var rannsóknar á málinu. Í mars 2011 hefði ríkislögreglustjóri sent svarbréf þar sem fram kom að aflað hefði verið upplýsinga um málið og niðurstaðan væri þess eðlis að ekki þætti ástæða til frekari viðbragða. Rannsókn málsins teldist lokið. „Jafnframt var forráðamönnum Íslenskrar erfðagreiningar boðið að snúa sér til embættis ríkislögreglustjóra hefðu þeir áhuga á sérfræðilegri aðstoð varðandi öryggisþætti starfseminnar,“ segir í yfirlýsingu ríkislögreglustjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert