Sló og hrækti í andlit stúlku

Maðurinn var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi.
Maðurinn var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. Ljósmynd/Ásdís Ásgeirsdóttir

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt tæplega 23 ára gamlan mann í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á stúlku fyrir utan veitingastaðinn Pakkhúskjallarann á Húsavík.

Fram kemur í dómnum að maðurinn hafi, aðfaranótt 5. september 2010, slegið stúlkuna í andlitið og síðan hrækt í andlit hennar, með þeim afleiðingum að hún hlaut eymsli og bólgu yfir hægra kinnbeini.

Pilturinn játaði en krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa. Að því virtu að hann hafði ekki sætt öðrum refsingum en sekt fyrir umferðarlagabrot og að því virtu að hann játaði brot sitt skýlaust var refsingin ákveðin skilorðsbundið fangelsi í einn mánuð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert