Á höfuðborgarsvæðinu var umferðin í júlí minni en í sama mánuði í fyrra og nemur samdrátturinn um 4 prósentum.
Fyrirvara verður að hafa á þessum tölum þar sem óvenju mikill samdráttur mældist á Hafnarfjarðarvegi, líkt og í janúar, en ekki hefur fundist haldbær skýring á þessu, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.
Frá áramótum hefur umferðin dregist saman um 3,2 prósent en útlit er fyrir að umferðin í ár dragist saman um 2-3 prósent og yrði umferðin þá svipuð eða heldur meiri en árið 2006.