Bíll með hjólhýsi valt á Kjalarnesi um klukkan 17.30. Talið er að slysið hafi átt sér stað vegna sterkrar vindhviðu. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var sjúkrabíll sendur á staðinn, en ekki er vitað meira um slysið að svo stöddu.
Hjólhýsið lá á hliðinni eftir slysið, málið er í rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.