Í mosavöxnu hrauni skammt vestur af Hafnarfirði hafa safnast fyrir ókjörin öll af alls konar drasli. Í hraungjótum má m.a. sjá ónýt sófasett, olíubrúsa, heimilistæki og bókahillur. Í gamalli gryfju úir og grúir af haglaskothylkjum. Skammt frá er hrúga af heimilissorpi og er ekki fyrir lyktnæma að hætta sér of nálægt.
Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að þarna séu nokkur bílhræ og í vor var nokkrum hræjum af kindum kastað ofan í eina gjótuna en þau voru síðar fjarlægð. Án draslsins væri svæðið kjörið til útivistar og þarna mun vera ágætt berjaland.