Meirihluti svarenda í nýrri könnun MMR telur enn að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu.
Um þriðjungur telur að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin. Rétt um 12% sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings.
MMR kannaði afstöðu landsmanna til nokkurra þátta sem varða ríkisstjórnina, stjórnaraðstöðuna og Alþingi í heild. Könnunin var endurtekning könnunar MMR frá í júlí 2010.
Í könnuninni kom fram að 67,1% þeirra sem tóku afstöðu sögðust frekar eða mjög sammála því að að ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á afkomu banka en heimilanna í landinu. Þetta er lítil breyting frá því fyrir ári síðan þegar 70,8% sögðust sömu skoðunar.
Þá töldu 32,7% þeirra sem tóku afstöðu að stjórnarandstaðan myndi stjórna landinu betur en ríkisstjórnin.
Hins vegar kváðust 42,4% þeirra sem tóku afstöðu öndverðrar skoðunar, þ.e. töldu að stjórnarandstaðan myndi ekki stjórna landinu betur en ríkisstjórnin, að því er segir í tilkynningu frá MMR.
Hvort tveggja reyndist lítil breyting frá í júlí 2010, þegar 29,3% lýstu sig sammála því að landinu yrði betur stjórnað af stjórnarandstöðunni og 45,2% sögðust ósammála því að landinu yrði betur stjórnað af stjórnarandstöðunni.
Einungis 12,4% þeirra sem tóku afstöðu sögðust sammála því að Alþingi standi vörð um hagsmuni almennings en 65,1% kváðust því ósammála. Þessi niðurstaða er lítil breyting frá fyrra ári þegar 15,8% lýstu sig sammála því að Alþingi stæði vörð um hagsmuni almennings en 64,1% sögðust því ósammála.