Viðskiptaráð gagnrýnir stefnu stjórnvalda í ríkisfjármálum og segir núverandi stefnu hafa tafið fyrir vexti hagkerfisins. Ráðið frábiður sér frekari skattahækkanir og bendir á, að að Rúmeníu undanskilinni, sé Ísland eina landið sem er í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þar sem ekki var hagvöxtur á árinu 2010.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Viðskiptaráði. „Þessa dagana er smiðshögg rekið á fjárlagafrumvarp næsta árs og fjórða árið í röð er stefnt að frekari skattahækkunum. Ástæðan nú er að upphafleg markmið um frumjöfnuð í ríkisfjármálum munu ekki nást, þvert á fyrri fullyrðingar forsvarsmanna stjórnvalda,“ segir í yfirlýsingunni.
Þar segir að þessar fregnir séu vonbrigði, sérstaklega þar sem viðsnúningur í rekstri ríkissjóðs sé eitt mikilvægasta markmiðið í endurreisn hagkerfisins.
„Verulegur hallarekstur til lengri tíma mun auka skuldsetningu ríkissjóðs og skerða kjör Íslendinga til framtíðar. Síðustu þrjú ár hafa stjórnvöld gripið til margvíslegra aðgerða til að rétta af hallann og fljótt á litið mætti ætla að þokkalega hefði tekist til. Þunginn í þessum aðgerðum hefur hins vegar verið um of á tekjuöflun með nýjum eða breyttum sköttum og annarri gjaldheimtu. Á meðan hafa aðgerðir til að auka umsvif í hagkerfinu, og auka þannig skatttekjur, ekki hlotið nægilegan hljómgrunn. Yfirlýsingar stjórnvalda síðustu daga benda því miður til þess að á árinu 2012 verði framhald á þessari forgangsröðun. Í ljósi hagvaxtarþróunar síðustu ára skýtur þar skökku við. “
„Merki um skaðsemi tekjuöflunaraðgerða stjórnvalda sjást skýrt á því að atvinnuvegafjárfesting og einkaneysla, forsendur hagvaxtar og atvinnusköpunar, eru enn við söguleg lágmörk,“ segir í yfirlýsingu Viðskiptaráðs. „Með hærri sköttum á stóriðju, fjármálafyrirtæki og sjávarútveg yrði höggvið í sama knérunn, áfram latt til fjárfestingar og niðursveiflan framlengd.“
„Í þessu ljósi má gagnrýna stefnu stjórnvalda í ríkisfjármálum og ítrekaðar yfirlýsingar þeirra um árangur af eigin aðgerðum,“ segir í yfirlýsingunni. Þar segir að núverandi stefna hafi tafið fyrir vexti hagkerfisins og að breytinga sé þörf.
„Að Rúmeníu undanskilinni er Ísland eina landið sem er í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þar sem ekki var hagvöxtur á árinu 2010. Að auki eru hagvaxtarhorfur hérlendis til næstu 5 ára með þeim slökustu á heimsvísu skv. nýlegri spá AGS og ekki er hagspá Seðlabanka Íslands frá 17. ágúst uppörvandi,“ segir í yfirlýsingunni.
Þar er hvatt til þess að nú verði öðrum meðölum beitt til að rétta af halla ríkissjóðs. „Frekari bið eftir hagvexti og bættum lífskjörum er óásættanleg“.