Reynt til þrautar

Höfðaborg þar sem Ríkissáttasemjari er til húsa
Höfðaborg þar sem Ríkissáttasemjari er til húsa mbl.is/Golli

Ríkissáttasemjari hefur boðað nýjan sáttafund í kjaradeilu leikskólakennara og sveitarfélaga. Með fundinum, sem hefst kl. 10 í dag, er gerð lokatilraun til að ná fram sáttum og afstýra verkfalli leikskólakennara.

Enn er ágreiningur um framkvæmd hugsanlegs verkfalls og ríkir því óvissa um hvert umfang þess kann að verða. Ef til verkfalls kemur verður málinu því vísað til úrskurðar Félagsdóms.

Í yfirlýsingu frá samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að mikilvægt hafi verið talið að ná samkomulagi við Félag leikskólakennara um framkvæmdina til að koma í veg fyrir átök við leikskóla ef til verkfalls kemur. Samninganefndin mótmælir því að stéttarfélag „gefi stjórnendum sveitarfélaga bein fyrirmæli“, segir í yfirlýsingunni.

Ekki samboðið virðingu barna

Félag leikskólakennara hefur sagt að það sé undir þeim sjálfum komið hvaða reglur séu settar í verkfallinu. Félag stjórnenda leikskóla hvatti í gær forsvarsmenn sveitarfélaga til að virða þær viðmiðunarreglur sem leikskólakennarar hafi sett um framkvæmd verkfallsins.

„Það er ekki samboðið virðingu barna að þeim sé boðið upp á aðstæður sem hugsanlega kalla á togstreitu eða átök um framkvæmd verkfalls leikskólakennara. Leikskólastjórnendur og foreldrar eru hvattir til að forðast slíkar aðstæður eins og frekast er unnt.“

Verkfall leikskólakennara hefst að óbreyttu á mánudaginn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert