Aukið samstarf um norðurslóðir

Össur Skarphéðinsson og Erkki Tuomioja í Tallinn, Eistlandi í gær.
Össur Skarphéðinsson og Erkki Tuomioja í Tallinn, Eistlandi í gær. Reuters

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ræddi Evrópu- og norðurslóðamál á fundi sínum með Erkki Tuomijia, utanríkisráðherra Finnlands, í Tallinn í Eistlandi í gær.

Í fréttatilkynningu segir að ráðherra hafi þakkað Finnum samstarfið í Evrópumálum en þeir hafa m.a. veitt sérfræðiráðgjöf um landbúnaðar- og byggðamál.

Ráðherra fór yfir stöðuna í viðræðunum við Evrópusambandið og hét finnski ráðherrann áframhaldandi fullum stuðningi við umsókn Íslands. Þeir fóru yfir stöðuna á evrusvæðinu og finnskum stjórnmálum þar sem ný ríkisstjórn hefur nýlega tekið við völdum.

Ráðherrarnir hétu því að auka samstarf þjóðanna um norðurslóðamál þar sem sérstaklega var rætt um uppbyggingu í menntun, rannsóknum og fjarkennslu. Samstarfið verði þróað áfram í vetur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert