Ákveðið að byggja fangelsi

Hólmsheiði.
Hólmsheiði. mbl.is/RAX

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að tillögu innanríkisráðherra að hefja byggingu nýs gæsluvarðhalds- og öryggisfangelsis á Hólmsheiði. Stefnt er að verklokum innan þriggja ára.

Kostnaðaráætlun nemur um 2,1 milljarði króna en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvernig framkvæmdin verður fjármögnuð.

Fram kemur í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu, að fyrsta skref í verkáætlun sé að efna til hönnunarsamkeppni um verkefnið og sé með því komið til móts við óskir arkitekta í því efni. Ráðuneytið skipi dómnefnd sem leggja muni lokahönd á samkeppnislýsingu. Eftir það verði gefinn tiltekinn skilafrestur og í framhaldi af því skili dómnefnd niðurstöðum og sé kostnaður við þennan verkþátt áætlaður 25 til 30 milljónir króna. Síðan verði samið við verðlaunahafa um að teikna fangelsið.

Þegar grunnteikningar liggja fyrir verður verkið síðan boðið út og er stefnt að því að framkvæmdir geti hafist síðari hluta ársins 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert