Lilja Mósesdóttir þingmaður segist fagna úrsögn Guðmundar Steingrímssonar úr Framsóknarflokknum á Facebook-síðu sinni í dag.
Þá segir hún að lengi hafi legið fyrir að Guðmundur átti ekki samleið með Framsóknarflokknum og aðeins spurning hvenær hann héldi sína leið.
„Nú er orðið ljóst að lengra er í kosningar en margur hélt. Guðmundur mun verja stjórnina falli á næsta þingi og losa þannig stjórnarmeirihlutann undan mislyndi Þráins,“ segir Lilja og bætir við: „M.ö.o. engar fyrirsjáanlegar breytingar á samfélagi, þar sem hagsmunir fjármagnseigenda eru ráðandi. Við sogumst bara lengra niður hringiðu kreppunnar.“