Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur gert sérstaka samþykkt þar sem gagnrýnd er harðlega sú ákvörðun iðnaðarráðherra að setja stjórn Byggðastofnunar af og skipa nýja í hennar stað þvert á óskir VG.
Þá segist þingflokkurinn lýsa stuðningi við fráfarandi fulltrúa VG í stjórninni og þakka þeim fyrir vel unnin störf.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, skipaði nýja stjórn Byggðastofnunar á ársfundi stofnunarinnar í vikunni. Í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu kom fram, að ekki hefði verið leitað eftir tilnefningum frá þingflokkum stjórnmálaflokkanna og það væri í samræmi við álit Ríkisendurskoðunar frá árinu 1996 þar sem lagt var til að komið yrði á beinu stjórnsýslusambandi milli ráðherra og stofnunarinnar.
Samkvæmt því skuli ráðherra skipa beint í stjórn Byggðastofnunar þar sem hann beri ábyrgð á stofnuninni og gagnvart Alþingi samkvæmt ráðherraábyrgð.