Útlendingastofnun fær aukið fé

Gistiheimilið Fit í Reykjanesbæ
Gistiheimilið Fit í Reykjanesbæ mbl.is/Rax

Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun að tillögu innanríkisráðherra að veita aukaframlag til Útlendingastofnunar vegna reksturs miðstöðvar fyrir hælisleitendur. Að óbreyttu hefði stofnunin þurft að segja upp samningi við Reykjanesbæ þar sem miðstöðin er starfrækt.

Kostnaður vegna hælisleitenda er mjög sveiflukenndur frá ári til árs og ræðst af fjölda þeirra hverju sinni. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði ljóst að segja hefði þurft upp samningi um vistun hælisleitenda að óbreyttu. Það hefði skapað óvissu og óöryggi meðal þeirra einstaklinga og fjölskyldna sem í hlut eiga og þess vegna sé þessi ákvörðun mikilvæg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert