Bresk stjórnvöld munu kosta lyf og þjónustu skurðlækna til að aðstoða um 5.000 manns sem hafa særst í átökunum í Líbíu. Þá munu þau tryggja mat og nauðsynjavörur fyrir allt að 690.000 manns eða um tíunda hluta þjóðarinnar, að því er fram kom á vef breska dagblaðsins Independent.
Fram kemur á vef blaðsins að alþjóðadeild Rauða krossins muni veita þjónustuna með fjárhagslegri aðstoð breskra stjórnvalda.
Steven Anderson, talsmaður Rauða krossins, segir þörfina mikla. Að óbreyttu stefni í að krabbameinslyf og lyf fyrir nýrnaveika muni klárast.
Því sé brýnt að koma lyfjum til almennings hið fyrsta.