„Fundurinn lýsir því stuðningi við alþýðu Líbíu og fordæmir hvers kyns kúgun og arðrán þar sem annars staðar,“ segir í ályktun Einars Ólafssonar, Elínar Sigurðardóttur og Jóns Torfasonar um hernað Atlantshafsbandalagsins í Líbíu. Ályktunin er lögð fram á flokksráðsfundi VG og er þar ítrekuð sú skoðu að Ísland skuli ganga úr NATO.
Orðrétt segir í ályktuninni:
„Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs haldinn 26.-27. ágúst 2011 vísar til ályktunar frá fundi sínum 20.-21. maí 2011, ítrekar fordæmingu sína á loftárásum Atlantshafsbandalagsins á Líbíu og krefst þess að ríkisstjórnin lýsi yfir vanþóknun sinni vegna þeirra.
Þessar árásir voru ólöglegar, þær beindust meðal annars að borgaralegum skotmörkum og ollu miklu tjóni og dauða fjölda óbreyttra borgara. Hvort með þeim hafi verið komið í veg fyrir verra ástand er ómögulegt að segja en hins vegar er ljóst að heimsvaldahagsmunir vestrænna ríkja og ekki síst olíuhagsmunir réðu miklu [um] þessar aðgerðir.
Fundur lýsir því stuðningi við alþýðu Líbíu og fordæmir hvers kyns kúgun og arðrán þar sem annars staðar. Jafnframt fagnar fundurinn þingsályktunartillögu þingmanna VG um úrsögn úr Atlantshafsbandalaginu sem lögð var fram á Alþingi 30. maí síðastliðinn.“