Marga fýsti að smakka á íslensku hunangi þegar íslenskir býflugnabændur héldu uppskeruhátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag.
Hunangshátíðin var hluti af víðtækari uppskeruhátíð í Laugardal í dag þar sem margt var á dagskrá. Meðal annars héldu íbúasamtök Laugardals útimarkað í Grasagarðinum.