Fjöldi funda verður í þingnefndum á Alþingi í dag. Alls er boðað til funda í níu nefndum.
Í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd verður fjallað um frumvarp til heildarlaga um stjórn fiskveiða. Í utanríkismálanefnd verður fjallað um frumvarp um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja.