Kanna áhuga á sameiningu

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra. mbl.is / Kristinn

Til stendur að kanna viðhorf sveitarstjórnarmanna og þingmanna til sameiningar sveitarfélaga en slík könnun fór fram árið 2006. Þetta kom fram í ávarpi Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra á ársþingi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra um  helgina.

Innanríkisráðherra sagði á þinginu að erfið fjárhagsstaða sveitarfélaga hefði verið eitt umfangsmesta og erfiðasta verkefni sveitarstjórnarmanna og ríkisvaldsins síðustu árin. Minnkandi tekjum og vaxandi kostnaði yrði að mæta með niðurskurði og/eða hækkun gjalda. Nýir kjarasamningar hjá ríki og sveitarfélögum síðustu vikur og misseri hefðu enn aukinn kostnað í för með sér og hefði því verið varpað fram að sveitarfélög yrðu að mæta þeim kostnaði að einhverju leyti með uppsögnum. Sagði ráðherra þetta slæma þróun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert