Lægri tollar á nautakjöt

Breskur slátrari með nautakjöt
Breskur slátrari með nautakjöt AP

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið vill að gefnu tilefni vekja athygli á að opið er fyrir innflutning nautakjöts á lækkuðum tollum. Hefur heimildin, sem rennur út 30. september næstkomandi, verið í gildi frá því 10. júní á þessu sumri.

Upphaflega átti opinn tollkvóti í nautakjöti að vera í gildi til 30. júlí en vegna aðstæðna á markaði var heimild til innflutnings framlengd til 30. september. Um er að ræða almenna heimild sem jafnt heildsalar sem veitingahús í landinu nýta sér um þessar mundir.

Í ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðarmála er fylgst með ástandi mála á kjötmarkaði og taka heimildir sem ráðuneytið veitir til innflutnings mið af aðstæðum á markaði, segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert