Fylgjast með brotum úr ómerktum bílum

Lögreglan verður við eftirlit í umferðinni.
Lögreglan verður við eftirlit í umferðinni. mbl.is/Júlíus

Lögreglan hefur síðustu misseri beint sjónum að brotum í umferð sem hafa verið áberandi eða sérstök ástæða þótt til að sinna vegna hættu sem þau skapa.

Dæmi um slík verkefni er eftirlit með farsímanotkun án handfrjáls búnaðar og stefnuljósanotkun. Þá hefur athyglinni verið beint að hrað- og svigakstri ökumanna í þéttri umferð.

Lögregla ætlar að fylgjast sérstaklega með ofangreindum brotum næstu vikurnar. Til þess mun hún styðjast við hefðbundið, sýnilegt umferðareftirlit en einnig nota ómerktar lögreglubifreiðar til þessa. Vonar lögregla að vitneskja ökumanna um notkun ómerktra lögreglubifreiða við umferðareftirlit letji þá til brota.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert