Í júlí 2011 voru 97 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 49 fyrirtæki í júlí 2010, sem jafngildir tæplega 98% fjölgun á milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í fasteignaviðskiptum.
Fyrstu sjö mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 938 sem er um 55% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 604 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.
Einkahlutafélögum fjölgar
Í júlí 2011 voru skráð 120 ný einkahlutafélög (ehf.) samanborið við 103 einkahlutafélög í júlí 2010, sem jafngildir 16,5% fjölgun á milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í fasteignaviðskiptum og heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum.
Alls var 961 einkahlutafélag skráð fyrstu sjö mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um rúm 4% frá sama tímabili árið 2010 þegar 1002 ný einkahlutafélög voru skráð, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.